Skelfilegar móđganir og mystískir spádómar
22.5.2008 | 21:42
Held ég byrji ţessa fćrslu á ađ sýna ykkur ţennan link sem ég fékk í pósti í dag; s.s. listi yfir 10 skelfilegustu mógđanirnar á hinum ýmsu tungumálum (ath. Ísland er #4 međ móđgun sem ég hef nú reyndar aldrei heyrt en er kannski vinsćl hjá "unglingunum"), ţetta eru nú meiri ásakanirnar sem birtast ţarna!
10 Most Devastating Insults from around the World
Annars barst mér dáldiđ undarlegur pési gegn um lúguna um daginn. Ég hafđi (bókstaflega) nýlokiđ viđ bók sem heitir "End of Days: Armageddon & Prophecies of the Return" eftir Zecharia Sitchin, sem stundar svokallađa "ancient astronomy" eđa fornstjarnfrćđi (veit ekki alveg hvađ íslenska orđiđ er) og rannsóknir á spádómum úr fornum menningum. Hann fjallar í ţessari bók sinni um menningu Súmera, Babýlon, Assyriu, og sögu landssvćđanna og menninga í Miđ-Austurlöndum og ţá sérstaklega í kringum Jerúsalem og ţćr lendur. Ćtla nú ekkert of djúpt í ţetta mál ţar sem ţetta er ekki beint vísindalega sannađar kenningar heldur frekar hans 'alternative' pćlingar um uppruna og stefnu mannkynsins. En a.m.k. fariđ mikiđ í spádóma úr hinum og ţessum trúarbrögđum, og ţá ađ miklu leiti úr Gamla Testamentinu.
Ţannig ađ ég er dáldiđ gegnsýrđ af ţessum málum ţessa dagana, sem gćti spilađ inn í viđbrögđ mín.
Anyway. Ég er á leiđinni út í gćrmorgun og rek ţar augu í auglýsingapésa sem hefur veriđ skutlađ inn til okkar, sem ber titilinn "Undarlegir tímar - Spádómar Biblíunnar" og býđur mér á frítt námskeiđ í tilgangi ţess ađ útskýra grunnatriđi spádóma Biblíunnar og hvetja fólk til ađ rannsaka ţá áfram upp á eigin spýtur. Fyrirlesari er Birgir Óskarson og fyrirlestrar eru níu í heildina. Ég hoppađi hćđ mína í heimalingsfötunum og var sannfćrđ um ađ ţessi bleđlingur vćri ćtlađur mér og mínum stúdíum (ég tek ţađ fram ađ ég er ađ kynna mér ţessi rit án trúarlegrar sannfćringar, frekar sem sagnfrćđilegar heimildir eđa gođsagnir) ..... en svo fékk ég mína eigin fordóma í andlitiđ.
Pésinn er nefnilega gefinn út af Kirkju Sjöunda dags Ađventista; sem ég verđ nú ađ viđurkenna ađ ég veit ekki sérlega mikiđ um. En veit ađ ţetta er off-shoot af kristnitrú, og ţeir hafa sínar skođanir og túlkanir á ţessum ritum. Nú er ég í klemmu. Á ég ađ fara og taka sénsinn á ađ ţetta sé faktíst jarđbundnir fyrirlestrar sem gćtu opnađ skilning minn á ţessum spádómum, eđa á ég ađ gefa skít í ţetta á ţeim forsendum ađ ţeir geta ekki mögulega veriđ hlutlausir í sínum skođunum...?
Mig langar í rauninni frekar mikiđ ađ kíkja, ég meina...mađur getur ţá bara labbađ út ef ţetta er eitthvađ "einum of". Er búin ađ missa af tveimur nú ţegar en nćsti er á morgun, og viđfangsefniđ er "Er heimsendir góđar eđa slćmar fréttir?" Ég er algjör nörd ţegar kemur ađ hvers kyns spádómum og túlkunum/ţýđingum ţeirra, og finnst hálfpartinn eins og ţessi bleđill hafi átt ađ koma til mín...
Ég spurđi stelpuna á efri hćđinni hvort hún hefđi fengiđ svona og hún svarađi ţví neitandi, sem og nágranni minn á efstu hćđinni...svoldiđ spúkí alltsaman.
Jú vitiđi...ég held ég skelli mér bara á fákinum annađ kvöld upp í Suđurhlíđ 36 og láti reyna á ţetta. Vill einhver memm?
Athugasemdir
ţú lest svo ćđislegar bćkur!
og ég segi farđu og kíktu á fyrirlesturinn, ţú fćrđ ábyggilega fullt af fróđleik og sennilega er ekki veriđ ađ reyna ađ frelsa fólk (annars vćri ţađ bara ákveđin reynsla líka)
svona gerast hlutirnir, einn daginn er mađur ađ spá í einhverju ţvílíkt skrítnu og nćsta dag fćr mađur póstsendingu um ţađ! kannast sko viđ ţetta
snilldarfćrsla!
halkatla, 22.5.2008 kl. 21:47
Guđ veri međ ţér, ekki veitir af. Segi svona.
Jenný Anna Baldursdóttir, 22.5.2008 kl. 22:00
emmmm....nei takk.
Haraldur Davíđsson, 23.5.2008 kl. 00:31
Hehehe ţakka góđar athugasemdir hér. Ég var ađallega ađ stressast yfir ţví ađ vinkillinn á ţessum fyrirlestrum yrđi eitthvađ fanatískur, en ég held ađ ţađ séu of miklir fordómar í mér ađ tékka ekki einu sinni á ţessu áđur en ég byrja međ hamarinn ađ dćma fram og til baka ;)
Hef svosem ekkert betra ađ gera á föstudagskvöldi ţegar vinnuhelgin er, örugglega bara ágćtt ađ halda sig á Biblíuspádómanámskeiđi svo mađur sogist ekki út í einhverja vitleysu ;)
kiza, 23.5.2008 kl. 08:37
"Heimsendir - góđar eđa slćmar fréttir?" -- ţetta kalla ég góđa spurningu!
Vésteinn Valgarđsson, 24.5.2008 kl. 02:57
Sćl Guđrún og takk fyrir kommentiđ og vinahót
Ég er bara ţví miđur búin ađ vera svo lömuđ eftir vinnudagana á nýju vaktinni ađ ég kemst varla upp úr sófanum eftir kl.8
Ţarf ađ fara ađ hakka í mig ginseng eđa eitthvađ álíka.
kiza, 24.5.2008 kl. 17:13
Alltaf gaman af ţví ađ lćra um skođanir manna á spádómunum. Ein af mínum uppáhaldsbókum er Ţjófur ađ nóttu sem skođar ýmsa Biblíu spádóma, ţá sérstaklega úr Daníelsbók, og setur ţá í samhengi viđ bahá'í trúna. En ég er náttúrulega bahá'íi ţannig ađ ţađ er kannski ekki ađ marka :P
Ef ţú hefur áhuga á öđruvísi nálgunum á spádómana en ţessa mainstream ţá mćli ég međ henni.
Bestu kveđjur,
Jakob
. (IP-tala skráđ) 30.5.2008 kl. 17:35
Ţakka kćrlega fyrir ţađ, Jakob. Alltaf gaman ađ lesa nýjar bćkur, hef einmitt veriđ ađ lesa dáldiđ um Bahá'í trúnna og ţeirra "stefnuskrá" :)
kiza, 2.6.2008 kl. 11:27
. (IP-tala skráđ) 4.6.2008 kl. 23:13
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.