gott að vita af því...
18.10.2007 | 14:29
What philosophical archetype are you? created with QuizFarm.com | |||||||||||||||||||||||||||
You scored as Sadean Libertine You wouldnât be out of place in any of the Marquis de Sadeâs literature. Manipulative, callous and amoralistic you loathe religion and all other constraints; often rebelling against authority solely for the sake of rebelling. The world is a playground to satiate your sadomasochistic tendencies and anyone who opposes such enjoyment better be stronger than you.
|
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
undirskriftalisti
18.10.2007 | 11:07
Heyr heyr!
Vinsamlegast setjið nafn ykkar á listann, þetta er þarft málefni og hver undirskrift skiptir máli!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hrósað fyrir afbrot?
17.10.2007 | 18:46
(áður en ég byrja að þruma vil ég bara taka það fram að þetta eru mínar eigin ómannúðlegu skoðanir sem hér fylgja, hatið mig ef þið viljið en ég bara verð að pústa út yfir þessu.)
Hefst þá pistillinn:
Jahá. Hefur nú Árni Johnsen tekið sig til í sinni endalausu góðmennsku og gefið 10 flatskjássjónvörp í Hegningarhúsið á Skólavörðustíg. Nú hef ég í raun og veru enga ástæðu eða grundvöll til að gagnrýna hvað Árni gerir við peningana sína, en ég verð að segja að mér er ofboðið.
Ég veit að það hefur verið mikið skeggrætt um þetta mál; og þá komið sterkt fram sá punktur að "húsgögn geri fangavist ekkert auðveldari" en vitið þið hvað:
Nú frussa örugglega allir upp kaffinu sínu og stimpla mig sem mannhatara frá miðöldum, en finnst ykkur ekkert að því þegar fangar (lesist: dæmdir glæpamenn) hafa það betur heldur en löghlýðnir einstaklingar? Ég t.d. á EKKI flatskjá. Ég sjálf á ELDGAMALT sjónvarp sem ég fékk gefins frá vinkonu minni sem fékk það gefins frá frænku sinni. Guð veit hvaðan frænkan fékk það gefins. A.m.k. er það fornt, og fúnkerar ekkert alltof vel. Ég væri alveg til í einn flatskjá, Árni.
Nú hefur maður heyrt af því að fangar geti t.d. eytt tíma sínum í nám meðan þeir sitja inni. Frábært segi ég; partur af betruninni. En hvað borga þeir fyrir það? Hvað borga þeir fyrir bækurnar og ritföngin?
Ég man þá tíð að maður skráði sig í Iðnskólann, borgaði 11000krónur fyrir það, og svo þurfti maður að eyða tæpum 30000kr í bækur og gögn. 41000kall þar. Ekkert of auðvelt fyrir skítblankan námsmann.
Hvað borga þeir fyrir aðgang að internetinu? Eitthvað? Svo er hægt að minnast á tannlæknaþjónustu, hver borgar fyrir það? HMM?
Ég veit hvað ÉG þarf að borga fyrir eina stutta skoðun hjá tannlækni. Það er a.m.k. það hátt að ég geri það ekki nema ég viti fyrir víst að þurfi að laga eitthvað, þá borgar það sig kannski eitthvað. Annars sleppi ég því einfaldlega og fæ mér frekar eitthvað að borða.
Ég vinn fulla vinnu, skila mínum skatti og reyni að vera almennilegur borgari, en ég hef samt ekki efni á að hafa internet-tengingu heima hjá mér. Það er ekki fræðilegur sjens í helvíti að ég eigi eftir að eiga pening fyrir nýju sjónvarpi næstu árin. Ég rétt skrimti eftir að hafa borgað leigu, skuldabréf og tilfallandi kostnað. Ég ætti kannski bara að skella mér út og buffa einhvern minni máttar, þá get ég horft á allar rásirnar í frábærum flatskjás-gæðum á meðan gert er við jaxlana í mér!
Finnst ykkur eitthvað skrýtið að glæpamenn skuli leita hingað til lands; rupla, ræna, nauðga, berja og jafnvel myrða án nokkurrar eftirsjár þegar fangelsin okkar eru flottari húsakynni en þeir gætu nokkurn tímann fengið í heimalandi sínu? Og þjónustan sem er innifalin er svona mögnuð??? Af því sem ég hef heyrt þá finnst þeim bara eins og þeir séu á Hilton hóteli þegar þeir sitja hér inni!
Þið megið kalla mig öllum illum eða góðum orðum eftir þennan reiðipistil. Engum kommentum verður eytt. Ég bara GET EKKI tekið undir það að glæpamenn eigi að hafa það kósý meðan þeir afplána dóm sinn.
A.m.k. ekki meira kósý en ég hef það.
-J.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Reykingar í Alþingishúsi
12.10.2007 | 15:36
Ok. Þetta er bara út í hött!
Ég geri mér grein fyrir því að mikilvægari mál hafa átt sér stað í heimi stjórnmála s.l. daga, og þ.a.l. ekki mikið verið fjallað um þetta; en mér blöskrar þetta. Í allt sumar og haust hafa allir aðrir þurft að færa reykingar sínar út á stétt og híma upp undir vegg ásamt því að þola ásakandi augnráð gangandi vegfarenda, og á meðan hafa þingmenn það bara kósý niðri í kjallara með sófa og læti!!!
Og enginn af þeim segir neitt, þó svo að ég giski á að þónokkur hluti þeirra sé reyklaus! Besti hlutinn var þegar skrifstofustjóri (þar sem forseti Alþingis var ekki á staðnum) var beðinn um að útskýra hvers vegna þingmenn fá undanþágu frá lögum: "Tja, okkur fannst þetta bara betra heldur en að láta þá húka úti..."
HA??? EINS OG VIÐ HIN, ÞÁ???
Greinilega eru þingmenn ekki á sama level og við hin þegar kemur að því að hlýða lögum. Það er augljóst að gamla góða "gerðu eins og ég segi, ekki eins og ég geri"-reglan er í fullu gildi hjá ráðamönnum þjóðarinnar. Ég get varla lýst tilfinningunni sem sveif yfir mig þegar ég sá þessa frétt; ég ætlaði einfaldlega ekki að trúa eigin augum (né eyrum!)!!!
ER ÞETTA Í LAGI?!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
is that a snake in your pants or....
10.10.2007 | 17:33
Duglegur þessi! Sjáiði ekki fyrir ykkur bíómyndina:
snakes in my pants!!!
Þar sem Samuel L. Jackson færi á kostum sem lögregluþjónninn og Pétur Jóhann Sigfússon fengi Óskarsverðlaun sem "drengurinn með snákinn í brókinni".
Jahérnahér.
Með snák innanklæða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Aðskildir við fæðingu?
10.10.2007 | 16:27
(ritað með fyllstu virðingu fyrir báðum aðilum...)
Er það bara ég...eða eru Dofri Hermannson og Dave Gahan úr Depeche Mode skuggalega líkir...?
...Undirrituð fékk nett áfall þegar hún hélt að herra Gahan sjálfur væri mættur á Moggabloggið...
...Ekki illum að líkjast þar...
<3
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
furðulegt...
27.9.2007 | 18:14
...þykir mér nú þegar stjörnuspá Morgunblaðsins tekur allt í einu upp á því að sussa á mig:
"Steingeit: Þú ert að byggja upp samband. Taktu því rólega, og leyfðu hinum aðilanum að heilla þig. Traust skapast á hljóðum stundum. Shhh."
Sko ég skal nú bara segja þér það að þú sussar ekkert á mig, þú svokallaða stjörnuspá!!! Og ég kem algjörlega af fjöllum varðandi hvaða "samband" þú átt við; ef mig minnir rétt þá hefur nú ekki einn andskotans skapandi hlutur gerst í þeim málum síðan í 'Nam, og þá er nú langt farið. Sveiattan.
Stórfurðulegt.
Nei ég segi svona...flippað samt. In other news, Doc Brown skilaði mér aftur til ársins 2007 þar sem Internetið faktískt virkar, þannig að við neyddumst til að setjast aftur við störf okkar í stað þess að eyða tímanum í kjaftatarnir, keðjureykpásur og pizzuát. Reyndar tókum við skrifstofuna í gegn í leiðindunum og fundust ýmsir áhugaverðir hlutir við þrifin; þ.á.m. bleikt mini-jólatré, tölvur frá áttunda áratugnum, fáránlegt magn af bréfaklemmum og flaska af útrunnum HobGoblin-bjór (dammit, mig langaði í hann...). Semsagt fjör á skrifstofunni. Einsog vanalega.
En nú er mín komin í vaktafrí fram á sunnudag! Ætli maður skutli kannski í sig einum köldum í kvöld, hmmmm Steini...? Ninja - over and out.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
andlaus.
27.9.2007 | 13:55
Kæra fólk sem ég hef bætt við sem blogg-vinum í dag:
Ég lofa að skrifa eitthvað almennilegt þegar að stíflan brestur í hausnum á mér. Í dag er ég einfaldlega of löt og tóm til að nenna að þröngva einhverju óþarfa þvaðri út. Þetta er hinsvegar alvöru blogg og alvöru manneskja á bak við það; engar áhyggjur.
Einnig er tölvukerfið í hakki í vinnunni vegna ónýts ljósleiðara einhvers staðar á Geithálsi (skildist mér); mér líður einsog Doc Brown hafi brunað upp að mér í morgun á DeLorean tryllitækinu og flutt mig nauðuga aftur til ársins 1995, þegar 28.8kbps módem sungu sín skerandi sírenuvæl í 2 tíma áður en tenging tókst og hver heimasíða tók rúman klukkutíma að hlaðast niður...
Já...those were the days.
-J.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)