Nútímameistari

Ég er bókstaflega að míga á mig yfir þessum fréttum!!! Var búin að heyra sögusagnir þess efnis að hr. del Toro væri mögulega viðriðinn Hobbit-verkefnið; og nú er þetta staðfest! Ég held að honum sé vel treystandi fyrir svona stóru verkefni sem og söguviðnum sjálfum, þar sem hann hefur skýra sýn á hvað hann vill gera, og hefur greinilega safnað að sér góðu liði fólks sem er á sömu bylgjulengd og hann varðandi kvikmyndagerð (svo er hann líka svo krúttlega Hobbitalegur sjálfur Wink )

Guillermo del Toro leikstýrði síðast meistaraverkinu Pan's Labirynth eðe Laberinto del Fauno, sem var sýnd á kvikmyndahátíð Græna Ljóssins og einnig tekin aftur til sýninga eftir hátíðina.  Sú mynd sýnir skýrt fram á færni hans sem kvikmyndagerðamanns, ævintýralega hugsun og skilning á römmum og framvindu.  Ég grét á þessari bíómynd, oftar en einu sinni, og skal nú segja ykkur að það gerist alls ekki oft.

Einnig leikstýrði hann hinni mögnuðu draugamynd The Devil's Backbone hér um árið, sem er virkilega skuggaleg og creepy draugamynd, þó þægilega laus við klisjur nútímahryllingsmynda.  Engin óþarfa bregðuatriði, heldur frekar stigmögnuð uppbygging á sögu og vönduð framsetning á tímabili í sögu Spánverja.  Mæli hiklaust með þessari fyrir þá sem er að fíla gæjann.

Svo hefur hann auðvitað tekið að sér 'mainstream' verkefni, sbr. Hellboy 1 og 2 (kemur í sumar).  Hellboy 1 kom mér á óvart, hún var einhvern veginn öðruvísi heldur en þessi fjöldaframleidda þvæla sem fylgir oft þessum FX/CGI-heavy kvikmyndum.  Því miður virðist söguþráður oft gleymast þegar framleiddar eru kvikmyndir sem treysta mikið á brögð og brellur, en Guillermo nær að halda sér á teppinu varðandi það og nýtir sér myndasöguformið vel í sköpun sinni á Hellboy á skjá.  Ég hlakka til að sjá framhaldið.  Einnig leikstýrði hann Blade 2 sem kom nú bara furðulega vel út.

Einnig hefur Guillermo tekið að sér framleiðslu á öðrum kvikmyndum, nýjasta rósin í hnappagatinu þar er dramatíska draugamyndin The Orphanage / El Orfanato; leikstýrt af Juan Antonio Bayona, sem hefur fengið magnaða dóma hjá gagnrýnendum sem og áhorfendum. Ég myndi ekki flokka þá mynd sem hryllingsmynd heldur frekar drauga-drama í anda Sixth Sense og þess háttar kvikmynda.  Horfði á hana í gær og fannst hún reyndar heldur slöpp fyrir minn smekk, en varla mark á því að taka þar sem ég er meira fyrir hryllinginn.  Hins vegar tekur hún á málum eins og barnsmissi, þunglyndi, geðveilu, andaheiminum og öllu þar á milli.  Mæli með að þið kíkið á hana, hún er alls ekki ógeðsleg eða einum of drungaleg. 

Svo má líka bæta því við að fyrst að menn eins og Ian McKellen og Viggo Mortensen setja nafn sitt á pappír (þó það sé bráðabirgða), þá má nokkurn veginn ganga út frá því að del Toro sé ekki að fara að slátra verkinu með einhverju rugli.  Mortensen er t.d. þekktur fyrir að hafna stórum hlutverkum í 'blockbuster' kvikmyndum og taka frekar að sér minni hlutverk í sjálfstæðum kvikmyndum, hann setur ekki nafn sitt á hvað sem er og kýs frekar að halda sínu listræna 'integrity' heldur en að fá einhverjar milljónir í vasann (eitthvað sem ýmsar Hollywood-stjörnur mættu taka sér til fyrirmyndar, ahem).

Á meðan við erum að ræða um spænska meistara þá verð ég einfaldlega að minnast á nýja uppáhaldið mitt á þeim slóðum, hinn magnaða Jaume Balagueró .  Hann leikstýrði síðast hinni ofur-stressandi hryllingsmynd REC, sem er algjörlega tekin upp á handheld-camerur.  Ég ætla ekkert of djúpt ofan í söguþráðinn en skal segja að myndin gerist um nótt, í húsi þar sem slökkvilið Barcelona-borgar er kallað út til að slökkva eld í, en þegar á staðinn er komið, er enginn eldur, heldur eitthvað allt annað í gangi.  Áður en á löngu líður eru söguhetjurnar komnar í lífshættu, og myndin hættir ekki fyrr en búið er að ganga frá öllum lausum endum.  Förum ekkert nánar út í það, en ef þið viljið ALVÖRU HRYLLING þá er þessi pottþétt.  Laus við klisjur, scary as hell, og öll á handheld.  Bara....tékkið á henni ef þið þorið!  Devil

En jæja, þá held ég að ég láti þessu lokið í bili, alltaf gott að dásama spænskumælandi snilld á morgnana.....

Já og PÉ ESS!  Guillermo del Toro er (á eftir Hobbitanum) að ganga í að leikstýra At the Mountains of Madness, sem er byggð á sögu H.P. Lovecraft!!! Hversu geggjað verður það að sjá Lovecraft-geðbilunina túlkaða gegn um fagurfræði og innsæi del Toro, ég bið spennt og naga neglurnar kerfisbundið fram að þessum degi! 


mbl.is Aftur í ævintýraheim Tolkiens
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skelfilegar móðganir og mystískir spádómar

Held ég byrji þessa færslu á að sýna ykkur þennan link sem ég fékk í pósti í dag; s.s. listi yfir 10 skelfilegustu mógðanirnar á hinum ýmsu tungumálum (ath. Ísland er #4 með móðgun sem ég hef nú reyndar aldrei heyrt en er kannski vinsæl hjá "unglingunum"), þetta eru nú meiri ásakanirnar sem birtast þarna!   LoL

10 Most Devastating Insults from around the World

 

Annars barst mér dáldið undarlegur pési gegn um lúguna um daginn.  Ég hafði (bókstaflega) nýlokið við bók sem heitir "End of Days: Armageddon & Prophecies of the Return" eftir Zecharia Sitchin, sem stundar svokallaða "ancient astronomy" eða fornstjarnfræði (veit ekki alveg hvað íslenska orðið er) og rannsóknir á spádómum úr fornum menningum.  Hann fjallar í þessari bók sinni um menningu Súmera, Babýlon, Assyriu, og sögu landssvæðanna og menninga í Mið-Austurlöndum og þá sérstaklega í kringum Jerúsalem og þær lendur.  Ætla nú ekkert of djúpt í þetta mál þar sem þetta er ekki beint vísindalega sannaðar kenningar heldur frekar hans 'alternative' pælingar um uppruna og stefnu mannkynsins.  En a.m.k. farið mikið í spádóma úr hinum og þessum trúarbrögðum, og þá að miklu leiti úr Gamla Testamentinu.

Þannig að ég er dáldið gegnsýrð af þessum málum þessa dagana, sem gæti spilað inn í viðbrögð mín.  

Anyway.  Ég er á leiðinni út í gærmorgun og rek þar augu í auglýsingapésa sem hefur verið skutlað inn til okkar, sem ber titilinn "Undarlegir tímar - Spádómar Biblíunnar" og býður mér á frítt námskeið í tilgangi þess að útskýra grunnatriði spádóma Biblíunnar og hvetja fólk til að rannsaka þá áfram upp á eigin spýtur.   Fyrirlesari er Birgir Óskarson og fyrirlestrar eru níu í heildina.  Ég hoppaði hæð mína í heimalingsfötunum og var sannfærð um að þessi bleðlingur væri ætlaður mér og mínum stúdíum (ég tek það fram að ég er að kynna mér þessi rit án trúarlegrar sannfæringar, frekar sem sagnfræðilegar heimildir eða goðsagnir) ..... en svo fékk ég mína eigin fordóma í andlitið.

Pésinn er nefnilega gefinn út af Kirkju Sjöunda dags Aðventista; sem ég verð nú að viðurkenna að ég veit ekki sérlega mikið um.  En veit að þetta er off-shoot af kristnitrú, og þeir hafa sínar skoðanir og túlkanir á þessum ritum.  Nú er ég í klemmu.  Á ég að fara og taka sénsinn á að þetta sé faktíst jarðbundnir fyrirlestrar sem gætu opnað skilning minn á þessum spádómum, eða á ég að gefa skít í þetta á þeim forsendum að þeir geta ekki mögulega verið hlutlausir í sínum skoðunum...?

Mig langar í rauninni frekar mikið að kíkja, ég meina...maður getur þá bara labbað út ef þetta er eitthvað "einum of".  Er búin að missa af tveimur nú þegar en næsti er á morgun, og viðfangsefnið er "Er heimsendir góðar eða slæmar fréttir?" Ég er algjör nörd þegar kemur að hvers kyns spádómum og túlkunum/þýðingum þeirra, og finnst hálfpartinn eins og þessi bleðill hafi átt að koma til mín...

Ég spurði stelpuna á efri hæðinni hvort hún hefði fengið svona og hún svaraði því neitandi, sem og nágranni minn á efstu hæðinni...svoldið spúkí alltsaman.

 

Jú vitiði...ég held ég skelli mér bara á fákinum annað kvöld upp í Suðurhlíð 36 og láti reyna á þetta.  Vill einhver memm?

 


Mmm...morgunkaffi.

(ég veit að það er ekki morgunn núna en látið mig í friði, ég vinn vaktavinnu Tounge )

 En annars.  MIKIÐ er ég fegin að vera komin á sumarvaktirnar.  Það er einfaldlega eitthvað sem drepur mig við að vinna 'eðlilega' vinnutíma.  Er búin að vera á einhverju furðulegasta vinnuskipulagi í vetur sem ég hef nokkurn tímann upplifað, sem var þó sett up í góðum tilgangi af hálfu vinnuveitanda minna, til að halda okkur báðum (sem deilum vöktunum) í 100% vinnu.  Fínt af þeim að gera það, ég segi það ekki.  En á móti kom að inni á milli komu alltaf períodur þar sem maður vann 6-8 tíma á dag í 7 daga, fékk svo einn dag í frí, vann svo 6-8 tíma á dag í 4 daga, svo eina helgi frí, svo hófst dæmið aftur.  Þetta er eins og að lýsa stærðfræðiverkefni fyrir fólki.  Og mín náttúrulega valdi sér það hlutskipti að vinna seinnipart dagsins, eða 11-1, sem olli því að ég einfaldlega svaf vanalega til a.m.k. 10, dröslaði mér svo í vinnuna, hékk þar til 6-7, og hundskaðist svo heim.  Þarna var allur dagurinn alltaf farinn í annaðhvort vinnu eða svefn (þar sem mér finnst bara rugl að vakna snemma á morgnana nema einhver sé að fara að borga mér fyrir það...)  og lítið varð úr þessum fáu frídögum þarna inná milli.  Nú þegar ég les þessa málsgrein þá sé ég að þetta er engan veginn 'eðlilegur vinnutími'.  

EN ENNÍVEI. Sumarvaktir rúla.  Nú vakna ég á mínum vinnudögum kl. 6, stekk í sturtu, fæ mér smá morgunmat (kaffi+sígó) og knúsa kettina aðeins áður en ég stekk af stað í vinnuna á nýja magnaða hjólinu mínu (codename: Bycle J. Fox) .  Þá get ég brunað Grettisgötuna heila og verið komin á minn vinnustað rétt fyrir sjö (þegar vaktin hefst).  Svo hangi ég þar til 7 um kvöldið, og þeysist svo heim í holuna mína.   Svona gengur þetta í tvo daga, svo tvo daga frí, svo unnið aðra hverja helgi (týpískar 'kokkavaktir').  Þannig er ég alltaf í garanteruðu fríi annað hvort 2 eða 5 daga vikunnar, og nýt þess að hafa 3ja daga helgar tvisvar í mánuði til að hangsa og þvælast.   Bara yndislegt.

Það er líka eitthvað svo brilliant við að hjóla um borgina svona snemma að morgni.  Það eru vanalega fáir ef einhverjir bílar á ferð, fyrir utan kannski sorphirðuna.  Einstaka sinnum sér maður morgunfúla bæjarbúa með stírur í augum á baðsloppinum úti með hundana sína, sem sniffa í óðaönn eftir pissustaðnum sínum á meðan eigendur þeirra sofna aftur standandi á miðri götu...
...Aðrir hjólreiðamenn skutlast framhjá, og maður horfir alltaf aðeins í áttina til þeirra með svona Clint Eastwood augnráði sem segir "Ég veit....við erum kúl" og svo er mómentið farið.  Ég Á  göturnar á morgnunum mínum, og drottna yfir gangstéttunum á sama tíma.  Mögnuð tilfinning.  Svo er alltaf svona sérstakt 'morgunveður'...það er ennþá kuldi í loftinu eftir þessa stuttu nótt, og einhver svona... "crispy" eiginleiki yfir öllu.  Svo hlýnar smátt og smátt með morgninum og oft um kl. 9 erum við búin að opna alla glugga á kontórnum sem og hurðina, og skella báðum viftum í gang (gluggarnir snúa allir í austur) ...  Kannski bara spursmál um að fjárfesta í garðhúsgögnum svo við getum setið fyrir utan innganginn og fengið okkur morgunkaffi 'al fresco' ....

Vá hvað þessi málsgrein fór út í ekki neitt.   Þið bara verðið að afsaka, ég á það til að renna út í svokallaðan "stream of consciousness"-rithátt, þ.e. ég bara bauna út því sem er að skutlast um í heilanum á mér án þess að virða hinn innri edit-takka viðlits.  Og '...' er í miklu uppáhaldi.  En ég reyni þó eftir bestu getu að a.m.k. bera virðingu fyrir stafsetningu og málsgreinum, þó þær séu kannski rýrar af málefnalegu innihaldi.

En aftur að frídeginum.  Nú sit ég hérna í sófanum mínum með 2 skjái operational, og blogga á sjónvarpsskjáinn, en MSN-a á hinum.   Ó þú magnaða tækni.  Þráðlaust lyklaborð, bara snilld. 
Einnig tók ég þá afdrifaríku ákvörðun þegar við fluttum hingað að segja skilið við bæði Windows og sjónvarpsgláp.  Með 'sjónvarpsglápi' þá á ég við gláp á sjónvarpsstöðvar eins og Stöð 1 og Skjáeinn, hvað sem þetta allt heitir.  Hafði verið farin að taka eftir því hvað ég horfði á mikið af bókstaflega DRASLI á þessum stöðvum, og oft bara vegna sjálfskapaðrar leti eða þreytu.  Horfði á einhvern retarded dramaþátt á S1 bara af því að ég nennti ekki að  drullast til að finna eða gera eitthvað annað.  Var ekki alveg að fíla þessa framþróun, og þegar við komumst að því að loftnetsplöggið hér er ekki í sama herbergi og við ákváðum að hafa skjáinn, þá gáfum við bara skít í þetta.  Og viti menn.....
.....Ég sakna þess ekki neitt.  Man varla einu sinni eftir því hvað var á dagskrá eða hvenær eða að þetta væri yfir höfuð í gangi.  Það tók svona viku að losa mig algjörlega undan kerfisbundinni drasl-dagskrá og færa mig yfir í heim sjálfs-stýrðrar skemmtunar.  Nú ræð ÉG hvað ég horfi á, og hvenær.
Ég viðurkenni það fúslega að ég nýti mér torrent-skráaskipti, og sé í raun ekkert að því einsog ég nýti mér það.  Vil stundum kalla mína notkun á þessu DVD = Download - View - Delete.  Sumsé, næ í efnið, horfi á það, eyði því.  Sama þó það sé gott eða slæmt.  Ef ég hef virkilega gaman af efninu þá kaupi ég mér það á besta mögulega formati sem ég get.  En ég geymi það ekki á disknum mínum (a.m.k. ekki lengi).  Bæði þar sem ég vil hlífa harðadisknum frá ofnotkun, og þar sem ég nenni einfaldlega ekkert alltaf að horfa á suma hluti oftar en einu sinni.  Ég er laus við auglýsingar og get horft eða hlustað á efnið á mínum tíma, undir mínum skilmálum, ekki einhverra auglýsingarisafyrirtækja.    Hef líka náð að kynnast svo ótrúlega mikið af efni sem maður einfaldlega kemst ekki í kontakt við hér á okkar farsælda Fróni, einsog tónlist sem á ekki upp á pallborðið hér og finnst ekki í búðum, sjálfstæðar kvikmyndir og hemildamyndir sem birtast einungis á kvikmyndahátíðum (kannski) hérlendis einu sinni á ári, bókum og þáttum sem við höfum ekki aðgang að.  Að maður minnist nú ekki á það fargan af efni sem er DREIFT LÖGLEGA með leyfi höfunda/r!  Margir upprennandi listamenn kjósa að setja efnið sitt sjálfir á netið og bjóða niðurhal til að koma sér á framfæri í heimi sem er stjórnað af nokkrum risum sem vita hvað 'selur' og drulla á allt annað!

Æ sorry. Mér verður stundum svo heitt í hamsi þegar þessi mál eru við hendi.  

Ég er að hlusta á frábæra rokkútvarpsstöð í gegnum www.live365.com, sem heitir Tundra Trash Radio og spilar stonerrokk/málm, heavy metal og alls konar psychedelic/experimental hart rokk.  Þessari stöð er haldið úti af stelpu sem heitir Beth og sendir út frá Kenai skaga í Alaska.  HÚN RÚLAR.  Rásin er opin öllum, þarft ekkert að borga, en ef þú kýst að kaupa aðgang að live365.com þá getur þú hlustað án allra auglýsinga (koma stutt brot á ca 40mín fresti eða svo og einnig promo frá listamönnum).  Man ekki alveg hvað ég borgaði fyrir eitt ár af VIP aðgangi (ekki meira en 4000kall, ca sama og árgjaldið á helv. kortinu) og það hefur svo sannarlega borgað sig!  Fjöldinn af útvarpsrásum þarna er geigvænlegur, og úr ótrúlega miklu að velja.  Get alltaf fundið eitthvað til að undirstrika skap dagsins þarna inni.  Þó er nú Tundra Trash í miklu uppáhaldi, og t.d. í gegn um þessa rás hef ég uppgötvað gnægð hljómsveita sem ég hefði hugsanlega ekki komist nálægt nema að eyða tugum eða hundruðum þúsunda í geisladiska (sem er dauð tækni ofan á allt)...
Ég fagna öllu svona, og hika ekki við að styðja við bakið á því með að greiða árs-aðgang eða sponsora fólk beint gegnum paypal eða álíka.  Bara klippa út þessa Senu og Smáís plebbakónga og kaupa beint af fólkinu sjálfu.

 Jæja ég er að fara út á hálar brautir hér.  Ætti líklegast bara að enda þetta hér áður en allir treila í burtu vegna tl;dr-syndróms.

Njótið miðvikudagsins, hvar sem þið eruð...

 

mcfly

 

smelli þessari fögru mynd hér með þar sem Michael J. Fox er mér hátt í huga þessa dagana þar sem fagri fákurinn (ahemm hjólið) gengur undir nafninu Bycle J. Fox, ætli þeir séu skyldir...? Ég er eitthvað steikt í dag, ég segi ykkur það...........


Innrás í múslimaland!!!

Virkar alltaf að hafa 'catchy' fyrirsögn ;)

Annars erum við (þ.e.a.s. ég og þýska stálið) að undirbúa okkur andlega og líkamlega undir kvöldflug til Marrakech, ásamt samstarfsfélögum hans í Disneylandi, a.k.a. CCP ;)  Þannig er mál með vexti að fyrirtækið er að halda nokkurs konar árshátíð, eða eins og þau kalla það "quasi annual funtrip", þar sem allir starfsmenn frá Íslandi, Atlanta og Kína hittast í Marokkó í nokkra daga til að slappa af, sleikja sólina og prútta frá sér vitið.  Hann borgar ekkert (nema jú nokkra þið-sund-kalla í staffasjóð mánaðarlega) og ég borga 50þús. fyrir allan pakkann (flug, hótel, morgunmatur, gala-dinner).  

Ég er bókstaflega að snappa yfir þessu!  Ég á það nefnilega til að 'gleyma' því að ég sé að fara erlendis (skiptir ekki máli hvert) þangað til nákvæmlega þann dag sem brottför er heitið, og fæ þá nett taugaáfall með tilheyrandi stressi.  Það virðist einsog hlutirnir sökkvi ekki inn í mig fyrr en ég er a.m.k. komin út á Keflavíkurvöll, og þá spænist ég öll upp   Wizard

Þetta verður mitt fyrsta skipti í annari heimsálfu, og ég býst við að fá nett menningarsjokk.  Einnig er veðurspáin (skv. BBC) einhvern veginn í þá átt að hiti á daginn er u.þ.b. 36°C og á kvöldin 16°C.  Sólskin og heiðskírt allan tímann, fín tilbreyting frá grámyglunni hér á bæ. Við skráðum okkur í einn túr, sem er hestvagns-ferð um "Gardens of Marrakech", allt voða rómó.  Svo er bara planið að versla smá á mörkuðunum, og eyða svo restinni í týpískum letifíling við laugina.   

Ég veit að ég hljóma einsog algjör njet-kulturni, en við nennum einfaldlega ekki að vera að sperra okkur út um allt, þessi ferð á að snúast um afslöppun, rólegar gönguferðir, góðan mat, góðan félagsskap og tryllt kynlíf á hótelherberginu  Devil

Og talandi um hótelherbergið...

 

 

     

Og að maður tali nú ekki um laugina...    

 

 Tíhíhí ég er að missa mig núna!!!  Reyndar er ýmislegt sem maður þarf að hafa í huga þegar maður heldur til fjarlægra menningarheima, eins og t.d. klæðnaður á almannafæri, almenn hegðun og forvarnir. Ég held t.d. að ég sé ekki á leiðinni neitt út án mannsins míns.  Eins hallærislegt og það kannski hljómar, þá ætla ég ekki að taka neina sjensa í þessari ferð. Ég hef ekki miklar mætur á trúarlegum rótum eða menningarlegum 'hefðum', but one has to play nice if one wants to bathe in the pool of patriarchy ;)

Og sérstaklega þar sem veðurspáin er einsog hún er, þá er ég nokkuð viss um að ég nenni ekki að hanga í víðum buxum og síðerma bolum allan liðlangan daginn.  Er fáránlega fegin því að hótelið er með "european atmosphere" , semsagt, bikinis are allowed! :D

Svo verður gala-dinnerinn haldinn á einhverjum prívat stað, þannig að okkur skvísunum var sagt að hafa ekki áhyggjur af berum handleggjum/fótleggjum, takk fyrir það já.  Ætla að nýta tækifærið og vera í rauða kjólnum sem ég var í þegar ég og þýska stálið kynntumst á dansgólfinu á Organ, á hrekkjavökukvöldinu síðasta.  Hinsvegar held ég að ég sleppi restinni af þeim búningi, sem samanstóð af ótrúlegu magni af heimatilbúnu gerviblóði og sárabindum, hehe ;)  Fyndið að finna ástina þegar maður er tæknilega 'dauður' , eða a.m.k. 'un-dead', með blóð útum allt og bauga niður á hné   ;)   6 mánuðir komnir a.m.k., flott hjá okkur !

 Get a.m.k. ekki annað en elskað út af lífinu gæjann sem gekk á eftir mér, reyndi við og dansaði við mig allt kvöldið (án þess þó að heimta að koma memm heim)  meðan ég (á hægri hlið) var svona útlítandi:

 

halloween me k

 

 Og nota bene þetta er tekið ÁÐUR en við fórum út og fengum okkur í þónokkur glös og svitnuðum einsog svín á dansgólfum borgarinnar.   Man, I love Halloween.

 Vá, heldur löng færsla í þetta skipti.  Ég get ekki mögulega nennt að blogga um hitamál þjóðfélagsins einsog hann Skúla bloggpíslarvott, mótmæli atvinnubílstjóra eða hvort Guð sé til.

LÍFIÐ ER EINFALDLEGA OF SKEMMTILEGT TIL AÐ NENNA AÐ VELTA SÉR UPPÚR ÞVÍ AKKÚRAT NÚNA!

 Njótið síðasta vetrardags og fyrsta sumardags, og munið að á morgun er líka Dagur Ferðalangsins!!! Fullt hægt að gera og sjá, kíkið bara á Dagskrá Ferðalangs  (það má finna enska útgáfu í nýja Grapevine blaðinu!)

Heart NinjaHeart

 ***ninja*** 


föstudagsflipp!

HOW TO TICK PEOPLE OFF

  1. Leave the copy machine set to reduce 200%, extra dark, 17 inch paper, 99 copies.
  2. In the memo field of all your checks, write "for sexual favors."
  3. Specify that your drive-through order is "TO-GO."
  4. If you have a glass eye, tap on it occasionally with your pen while talking to others.
  5. Stomp on little plastic ketchup packets.
  6. Insist on keeping your car windshield wipers running in all weather conditions "to keep them tuned up."
  7. Reply to everything someone says with "that's what you think."
  8. Practice making fax and modem noises.
  9. Highlight irrelevant information in scientific papers and "cc" them to your boss.
  10. Make beeping noises when a large person backs up.
  11. Finish all your sentences with the words "in accordance with prophesy."
  12. Signal that a conversation is over by clamping your hands over your ears and grimacing.
  13. Disassemble your pen and "accidentally" flip the ink cartridge across the room.
  14. Holler random numbers while someone is counting.
  15. Adjust the tint on your TV so that all the people are green, and insist to others that you "like it that way."
  16. Staple pages in the middle of the page.
  17. Publicly investigate just how slowly you can make a croaking noise.
  18. Honk and wave to strangers.
  19. Decline to be seated at a restaurant, and simply eat their complimentary mints at the cash register.
  20. TYPE IN UPPERCASE.
  21. type only in lowercase.
  22. dont use any punctuation either
  23. Buy a large quantity of orange traffic cones and reroute whole streets.
  24. Repeat the following conversation a dozen times.
    "DO YOU HEAR THAT?"
    "What?"
    "Never mind, it's gone now."
  25. As much as possible, skip rather than walk.
  26. Try playing the William Tell Overture by tapping on the bottom of your chin. When nearly done, announce "No, wait, I messed it up," and repeat.
  27. Ask people what gender they are.
  28. While making presentations, occasionally bob your head like a parakeet.
  29. Sit in your front yard pointing a hair dryer at passing cars to see if they slow down.
  30. Sing along at the opera.
  31. Go to a poetry recital and ask why each poem doesn't rhyme.
  32. Ask your co-workers mysterious questions and then scribble their answers in a notebook. Mutter something about "psychological profiles."

tíu vísbendingar um að þú sért öfgakristinn...

Hehehehhe finnst ágætt að skella þessu inn í ljósi umræðna sem hafa átt sér stað í bloggheimum í dag....

 

 

Top Ten Signs You're a Fundamentalist Christian

 

 
10 - You vigorously deny the existence of thousands of gods claimed by other religions, but feel outraged when someone denies the existence of yours.
 
9 - You feel insulted and "dehumanized" when scientists say that people evolved from other life forms, but you have no problem with the Biblical claim that we were created from dirt.
 
8 - You laugh at polytheists, but you have no problem believing in a Triune God.
 
7 - Your face turns purple when you hear of the "atrocities" attributed to Allah, but you don't even flinch when hearing about how God/Jehovah slaughtered all the babies of Egypt in "Exodus" and ordered the elimination of entire ethnic groups in "Joshua" including women, children, and trees!
 
6 - You laugh at Hindu beliefs that deify humans, and Greek claims about gods sleeping with women, but you have no problem believing that the Holy Spirit impregnated Mary, who then gave birth to a man-god who got killed, came back to life and then ascended into the sky.
 
5 - You are willing to spend your life looking for little loopholes in the scientifically established age of Earth (few billion years), but you find nothing wrong with believing dates recorded by Bronze Age tribesmen sitting in their tents and guessing that Earth is a few generations old.
 
4 - You believe that the entire population of this planet with the exception of those who share your beliefs -- though excluding those in all rival sects - will spend Eternity in an infinite Hell of Suffering.  And yet consider your religion the most "tolerant" and "loving."

 
3 - While modern science, history, geology, biology, and physics have failed to convince you otherwise, some idiot rolling around on the floor speaking in "tongues" may be all the evidence you need to "prove" Christianity.
 
2 - You define 0.01% as a "high success rate" when it comes to answered prayers.  You consider that to be evidence that prayer works.  And you think that the remaining 99.99% FAILURE was simply the will of God.
 
1 - You actually know a lot less than many atheists and agnostics do about the Bible, Christianity, and church history - but still call yourself a Christian.

 

Fengið af  http://www.evilbible.com/Top_Ten_List.htm í gegn um StumbleUpon.

Góðar stundir ;) 


magnaður gjörningur!

Horfið á myndina..hægra megin er hús að fuðra upp.  Vinstra megin má sjá slökkviliðsmenn að störfum.  Aðeins fyrir ofan þá (ekki inni á mynd) er ÉG AÐ GLÁPA ÚT UM GLUGGANN MINN OG FÁ TAUGAÁFALL!!!

 

Ég vaknaði laust fyrir tvö í nótt við mikinn fnyk inní íbúðinni. Þjóðverjinn svaf sem fastast og köttinn hvar hvergi að sjá.  Ég vesenaðist fram og til baka heima, sannfærð um að ég hefði ekki drepið nógu vel í sígarettu eða misst glóð niður einhvers staðar.  Svo kíkti ég út um gardínurnar og Grettisgatan var undirlögð af reyk, greinilega ekki af mínum sökum.  Opnaði hurðina út þar sem ég rakst á austur-evrópsku konuna sem ber út eitthvað ónefnt morgunblað og hún gargaði á mig "FIRE FIRE CALL POLICE"  í gegn um reykinn.  Þó svo að hurðin hafi ekki verið opin í meira en hálfa mínútu þá var það nóg til að fylla litlu íbúðina mína af reyk og ólykt.  Auðvitað var slökkviliðið búið að fá upphringingu og áður en fyrr var voru 3 stórir brunabílar og óteljandi löggubílar mættir á svæðið með tilheyrandi ljósa-show-i og látum.   Allt í allt held ég að þetta hafi tekið þá ca.1 1/2-2 tíma að ná niður eldinum, en þegar ég fór út í morgun voru þeir enn að rannsaka og búrast þarna.

Ég verð að segja að öll aðgerðin gekk vel og fagmannlega fyrir sig, og það er magnað að fylgjast með þessum mönnum að störfum.  Reyndar var undirrituð ekki ein af þeim sem var ræst út úr húsi sínu, en þurfti þó að troða púða í gluggann (sem er beyglaður og ekki hægt að loka almennilega) til að reyna að halda reyknum frá.  En ég gat ekki slitið augun af þessum gjörningi, og að horfa á reyk-kafarana koma út úr húsinu kolsvarta í framan, rífa af sér grímuna og hella í sig vatni....Þetta var hreint út sagt ótrúlegt! Á meðan slökkviliðsmennirnir spúluðu húsið að utan og innan og löggan hélt svæðinu öruggu stóð mín uppí glugga einsog smástelpa með stjörnur í augunum!
  Reyndar náði mín svo mikið sem engum svefn vegna ljósasýningarinnar og kattar-áhyggjum en það skipti engu máli, þar sem það sem á gekk fyrir utan gluggann var meira spennandi en nokkur bíómynd. 

Mikil blessun var að enginn var í húsinu.  Þetta hús hefur nefnilega verið þyrnir í augum margra á Grettisgötunni þar sem þar hefur safnast saman útigangsfólk og (oft á tíðum) eiturlyfjaneytendur, sem hafa valdið hávaða, usla og óþægindum hjá nágrönnunum (og undirritaðri).  Síðasta sumar var sérlega slæmt að þessu leiti, lögreglan var á staðnum annað hvert kvöld að ræsa út lið og reyna að hafa stjórn á málinu.  Sérstakt að skuli kvikna í húsinu nóttina eftir að frétt birtist um vandamál hústökumanna og útigangsfólks...kannski einhver að reyna að vekja athygli á einhverju..? 

En undir morgun var kisi búinn að skila sér heim (gvöðisélof) og mín náði loksins að festa smá svefn..bætti nú ekki úr skák að þurfa að mæta í vinnuna klukkutíma seinna, en mínir yndislegu samstarfsmenn hafa skipað mér að koma mér heim og leggja mig í nokkra tíma, þar sem augljóst er að lítinn svefn var að fá í nótt (nema maður sé Þjóðverjinn, sem svaf þetta allt meira og minna af sér, enda ekki merkismál fyrir marga að eldur logi í götunni þeirra...) ... 

 Enn og aftur, fimmfalt húrra fyrir slökkviliðsmönnunum, reykköfurunum, lögreglumönnunum og sjúkraliðunum sem mössuðu þetta á Grettisgötunni í nótt.  Eitt orð yfir þetta starf þeirra:

 

R E S P E C T.


mbl.is Eldur við Grettisgötu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

undirskriftir óskast!!!

Ef þér er annt um miðbæinn og skemmtanalífið þar þá endilega kvittið!!!

 

  http://www.PetitionOnline.com/askorun/

 

BJÖRGUM Q-BAR OG ÖLLUM HINUM!!!

 

<3 


<3 <3 <3

Vitið þið hvað...?

 

Ég bara hef ekkert að segja þessa dagana nema gott.  Það er eitthvað kjánalegt og æðislegt að gerast innra með mér og ég einfaldlega ræð ekki við það!  Það er aðlaðandi og óhugnanlegt á sama tíma en ég er að farast úr spenningi þrátt fyrir allt!   Lífið er gott og ég sé enga ástæðu til að pirrast yfir neinu í dag; þó svo að veðrið sé að fara forgörðum...

Það mætti halda að ég hefði borðað fulla krús af fiðrildum!

 

<3 


medúsa?


what mythilogical creature are you
created with QuizFarm.com
You scored as medusa

medusa an antient greek and roman seductress know for her hair, of snakes. she wraths much power and is obsessed with her looks. she is gorgeous but extremely temperamental. you may not be as bad as her swearing to take over and destroy the world and all, but you might let your temper control you so remember to be cool headed and collected.

medusa

59%

merman

50%

siren

25%

dragon master

17%

fairey

8%

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband